Ákvað svo að prófa að prjóna kúlu og maður minn hvað það var erfitt að fylgja bæði uppskriftinni að kúlunni - útaukningunni - og svo munstrinu sjálfu. En það kom ótrúlega fljótt og mörgum jólakúlum síðar er ég bara ansi góð í þessu.
Ég ákvað að kaupa bókina 55 Christmas Balls to Knit á Amazon.com en fyrir jólin var hún líka á tilboði í gegnum Núið.
Ég gerði nokkrar kúlur til að komast uppá lagið með aðferðina og fór svo fljótt að gera tilraunir með munstur frá mér sjálfri. Þessi lengst til hægri er frá mér. Einfalt jólarósarmunstur.
Fallegastar finnst mér kúlurnar í hvítu og rauðu eða rauðu með smá gulli.
Ég geri eina kúlu á kvöldi yfir sjónvarpinu. Um að gera að hafa munstrið ekki flókið ef verið er að horfa á spennandi sjónvarpsefni ;)